Góð þátttaka í heilsugöngu leikskólans
Góð þátttaka var í sameiginlegri göngu barna og starfsfólks Leikskóla Húnabyggðar með eldri borgurum og öðrum áhugasömum í tilefni Heilsudaga í Húnabyggð.
Gengið var saman, mikið spjallað og allir virtust njóta samverunnar. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá hversu margir komu og tóku þátt í göngunni.
Að göngu lokinni var boðið upp á ávexti. Við þökkum öllum sem komu og áttu með okkur skemmtilega stund þar sem hreyfing, samvera og gleði voru í fyrirrúmi.









