Menntastefna Húnabyggðar

Menntastefna fyrir Húnabyggð var staðfest af sveitarstjórn Húnabyggðar þann 11. ágúst og birt á heimasíðu sveitarfélagins.

Menntastefna Húnabyggðar markar framtíðarsýn í skóla- og frístundastarfi sveitarfélagsins, hvatningu til einstaklinga að hafa áhrif og taka virkan þátt í að viðhalda samfélagi sínu, breyta því og þróa það. Hún er leiðarvísir allra þeirra sem vinna með börnum og unglingum í átt að farsælu námi og frístundastarfi.

Lögð er áhersla á að veita framúrskarandi menntun í umhverfi þar sem allir séu þátttakendur í lærdómsumhverfi þar sem þeir fá tækifæri til náms og lærdóms, að auka hæfni sína, finna að þeir skipti máli og fái tækifæri á eigin forsendum og án mismununar. Með því móti læra börn og ungmenni að byggja sig upp andlega og líkamlega, verða gildandi borgarar í samfélaginu og geta unnið með öðrum. Menntastefnan tekur líka til menntunar fullorðinna í sveitarfélaginu og hvernig

sveitarfélagið getur stutt við íbúa sína til frekara náms.

Hlutverk Menntastefnu Húnabyggðar er að styðja við skapandi og fjölbreytt starf í leik og starfi, efla þann mannauð sem er til staðar hverju sinn og hvetja til

samstarfs milli stofnana og við nærsamfélagið. Gildi Húnabyggðar, virðing, traust og góð samskipti endurspeglast í öllu fræðslu- og frístundastarfi innan sveitarfélagsins og lögð er áhersla á að hver einstaklingur fái að blómstra á sínum forsendum. Húnabyggð leggur áherslu á að við stofnanir sínar starfi vel menntað, metnaðarfullt og framsækið starfsfólk og styður við starfsþróun þess.

Megináherslur stefnunnar eru farsæld, fjölbreytileiki og faglegt lærdómssamfélag og byggir hún á 5 stoðum Menntastefnu Íslands til 2030. Stefnan byggir einnig á gildandi lögum um skólastarf og aðalnámskrám, ásamt Barnasáttmálanum og Heimsmarkmiðum. Samhliða stefnunni er aðgerðaáætlun sem er lifandi skjal fyrir skólasamfélagið að vinna með. Gæðaviðmið eru sett í innramats kerfum skólanna til að vinna nánar með aðgerðaáætlunina.


Það er ástæða að óska okkur öllum til hamingju með metnaðarfulla og framsýna menntastefnu!

(tekið af vef Húnabyggðar 8. sept. 2026)

Eftir Sigríður B. Aadnegard • 24. september 2026
Góð þátttaka í heilsugöngu leikskólans
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 22. september 2026
Á morgun miðvikudaginn 23. september!
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 19. ágúst 2026
Námskeið í skyndihjálp
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 23. júní 2026
Krabbameinsfélags Austur‑Húnavatnssýslu færir leikskólanum sólarvörn
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 22. maí 2026
Lausar stöður
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 27. apríl 2026
Menntastefna Húnabyggðar
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 1. apríl 2026
Gleðileg páska
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 17. mars 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 26. febrúar 2026
Sögustund á ferð og flugi
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 19. febrúar 2026
Kiðlingar í heimsókn!
Show More