Dagur leikskólans

Dagur leikskólans er 6. febrúar ár hvert. Þessi dagur er tileinkaður mikilvægi leikskólastarfs og fræðslu yngstu barnanna en þann 6. febrúar árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Markmiðið með Degi leikskólans er að stuðla að jákvæðri umræðu um leikskólastarf og um leið beina athygli samfélagsins að því faglega og metnaðarfulla starfi sem innt er af hendi í leikskólum landsins á degi hverjum.

Nemendur og kennarar leikskóla Húnabyggðar vilja af þessu tilefni bjóða foreldrum í heimsókn og borða morgunmat með börnum sínum þennan dag(föstudaginn 6. febrúar).

Nemendur í Stóra- Fjallabæ bjóða foreldrum í morgunmat kl. 8:30 í mötuneyti Húnabyggðar.

Nemendur í Fjallabæ, Fellabæ, Hólabæ og Þúfubæ bjóða foreldrum að koma kl. 8:15.

Við vonum að sem flestir sjái sér fært að koma og stoppa í smá stund.


Eftir Sigríður B. Aadnegard • 24. september 2026
Góð þátttaka í heilsugöngu leikskólans
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 22. september 2026
Á morgun miðvikudaginn 23. september!
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 8. september 2026
Menntastefna Húnabyggðar
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 19. ágúst 2026
Námskeið í skyndihjálp
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 23. júní 2026
Krabbameinsfélags Austur‑Húnavatnssýslu færir leikskólanum sólarvörn
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 22. maí 2026
Lausar stöður
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 27. apríl 2026
Menntastefna Húnabyggðar
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 1. apríl 2026
Gleðileg páska
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 17. mars 2026
This is a subtitle for your new post
Eftir Sigríður B. Aadnegard • 26. febrúar 2026
Sögustund á ferð og flugi
Show More