
This is a subtitle for your new post

Hvað liggur á bak við erfiða hegðun?
Vilt þú skilja hvað liggur á bak við erfiða hegðun? Óskar þú eftir verkfærum til þess að hjálpa barni í slíkum aðstæðum? Vilt þú ráðleggingu um hvernig þú getur byggt upp tilfinningafærni og þrautseigju?
Með því að tvinna saman þekkingu á taugakerfinu og tilfinningagreind – er hægt að finna réttu brautina að kærleiksríkum lausnum fyrir börnin okkar þegar þau eiga erfitt.
Markmið með fyrirlestrinum er að auka hæfni þátttakenda til þess að undrast yfir hegðun barna og bæta tengslamyndun. Því í þeim öruggu tengslum getur lærdómur, þátttaka og lífsgleði átt sér stað.
Húnabyggð býður öllum sem hafa áhuga á velferð barna á fyrirlesturinn sem fer fram í Húnaskóla 24. mars. kl. 16:30-18:30










